Stefna
Stefna Eyktar í jafnréttismálum er að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna innan vinnustaðarins. Í áætluninni eru sett upp markmið og aðgerðaráætlanir til að ná þessum markmiðum.
Jafnréttisáætlunin gildir fyrir allt starfsfólk Eyktar.
Jafnréttisáætlunin er sett fram samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna nr. 150/2020, og annarra laga og reglna er snúa að jafnrétti.
Markmið
Eykt leggur áherslu á jafnan rétt kynjanna til launa, stöðuveitinga og starfa allra starfsstétta Eyktar. Starfsfólk Eyktar skal ennfremur njóta sömu tækifæra, réttinda og starfsaðstæðna óháð kynþætti, þjóðerni, trúarbrögðum eða öðrum þáttum.
Eftirfarandi eru markmið Eyktar:
- Starfsfólk skal njóta sömu launa og kjara fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf, óháð kyni.
- Starf sem laust er til umsóknar skal standa öllum opið, óháð kyni.
- Lögð er áhersla á að starfsþjálfun og endurmenntun standi öllu starfsfólki til boða, óháð kyni.
- Lögð er áhersla á að starfsfólk geti samræmt vinnutíma og fjölskyldulíf eins og kostur er.
- Starfsfólki skal auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna.
- Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni eru ekki liðin á vinnustaðnum.
- Samþykkt af stjórnendum Eyktar 03.11.2021
Samþykkt af stjórnendum Eyktar 03.11.2021
Samþykkt af Jafnréttisstofu 04.11.2021