Fréttir
9.11.2009
JP lögmenn fyrstir í turninn við Höfðatorg
Í turninum er nú þegar einn matsölustaður og annar að opna í byrjun mars nk. Þá munu nokkur fyrirtæki hefja starfsemi þar á næstunni. Mikill áhugi er á húsnæðinu og gera forsvarsmenn Höfðatorgs sér vonir um að vel gangi að leigja út húsnæði þar á næstu mánuðum.
Við bjóðum JP lögmenn velkomna í turninn okkar og erum sannfærð um að það muni fara ákaflega vel um starfsemi fyrirtækisins í byggingunni. Við erum stoltir af verkefninu og vitum að það verður borginni til mikils sóma,segir Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Höfðatorgs hf.
Nánari upplýsingar um turninn veitir:
Gunnar Valur Gíslason, forstjóri Eyktar ehf. S:822-4403